Bobby Charlton skólinn

*** í ljósi aðstæðna eru allar okkar ferðir í endurskoðun ***

Næsta ferð: áætluð 25. júlí – 1. ágúst 2022

Áætlað verð 2022:  Liggur fyrir ca. 1. sept. 2021.

Innifalið í verði:
Flug til MAN með Icelandair, flugv.skattar, flugv.akstur erlendis, gisting, fullt fæði (morgunmatur, hádegis- og kvöldverður), Bobby Charlton skólinn, skoðunarferð á leikvang og íslensk fararstjórn.

Áætlað ferðaplan: 
Mánudagur 25. júlí:  Icelandair frá KEF -Manchester 

Mánudagur 01. ágúst: Icelandair frá Manchester til KEF

Gisting:
Gist er á Travelodge Manchester Didsbury Hotel. Herbergin eru 4ra manna. Nánari upplýsingar um hótelið má sjá HÉR.
Einnig fylgir með rúmfatnaður, sjónvarp, baðherbergi og handklæði, fullt fæði (þrjár máltíðir á dag)

Þjálfarar:
Þjálfarar í Knattspyrnuskóla Bobby Charlton starfa hjá virtum knattspyrnufélögum í Englandi og Wales, m.a. hjá kvennaliði Swansea, Manchester City, Blackburn Rovers o.fl. Þeir eru með gott tengslanet og með sambönd við fjölmörg félög á Bretlandseyjum.
Leikmenn sem sýna umtalsverða hæfileika og metnað, geta átt von á því að breskir atvinnuklúbbar vilji bjóða þeim að koma aftur til Englands til reynslu, ef forráðamenn eru því samþykir.

Mjög góð gisti-, fræðslu- og íþróttaaðstaða.
Keppt er í hæfileikakeppni skólans þar sem þátttakendur fá tækifæri til að bæta met David Beckham.
Farið er í skoðunarferð á leikvöll í nágrenninu, yfirleitt Anfield eða Old Trafford. Stundum er farið á völlinn, en það fer eftir framboði á góðum leikjum í Manchester eða nágrenni.

Íslenskir fararstjórar fylgja hópnum alla ferðina.

Heimasíða skólans http://www.bcssa.co.uk fyrir frekari upplýsingar um skólann sjálfann.

Við erum líka á Facebook: https://www.facebook.com/bobbycharltonisland/ 

HÉR MÁ SJÁ VIDEO FRÁ SKÓLANUM.

HÉR MÁ SJÁ VIDEO FRÁ FERÐ OKKAR Í SKÓLANN 2015.

MYNDIR ÚR FERÐ OKKAR 2015 MÁ SJÁ HÉR.

Um 2.500 ánægð íslensk ungmenni síðan 1994!
Fótbolti er forvörn