Bolta- og borgarferðir

Boltaferðir
 
Enski boltinn rúllar ár eftir ár. Við bjóðum eins og undanfarin ár upp á vandaðar bolta- og skemmtiferðir til Manchester, Liverpool, London o.fl.
 
Leikjaplan fyrir ensku úrvalsdeildina 2011-2012 má sjá á fixtures365
 
ÍT ferðir koma hópum á leiki að eigin vali, auk þess sem við setjum upp ferðir fyrir einstaklinga og hópa á valda leiki.
ATH. að við seljum yfirleitt ekki miða eingöngu á leiki, heldur pakka með gistingu og miða á leik og flugi ef fólk vill.
 
NÝTT.  Við getum boðið upp á mjög fína "hospitality" pakka á heimaleiki Liverpool.
Innifalið: 4ra rétta hlaðborð, miði á langhlið vallarins (Lower Centenary Stand), kaffi og te í hálfleik, kaffi og með því eftir leik, leikskrá.
Verð frá 135.900 kr. (m.v. fargjald, flugv.skatta og gengi GBP 27. nóv. 2011).
Ath. að það er misjafnt verð eftir leikjum o.fl.
 
Hafið samband, við getum komið þér á alla leiki - allsstaðar.
Sími 588 9900 - Tölvupóstfang: boltaferdir@itferdir.is
 
Borgarferðir
 
Við bjóðum sem fyrr upp á fjölbreytt úrval af borgarferðum til ýmissa borga í Evrópu. Vinsælustu borgirnar hafa löngum verið London, Manchester og Kaupmannahöfn, en ÍT ferðir hafa einnig skipulagt ferðir til Newcastle, Glasgow, Edinborg, Amsterdam, París o.fl.
 
Við þekkjum vel þá möguleika sem eru í boði í Manchester, Liverpool, Helsinki og hjá frændum okkar og næstu nágrönnum, Þórshöfn í Færeyjum. Það þarf ekki alltaf að leita langt yfir skammt.
 
2011-2012 bjóðum við m.a. upp á helgarferðir til Manchester og Liverpool: Þessar ferðir geta verið borgarferðir, boltaferðir, tónleikaferðir, skemmtiferðir, árshátíðarferðir eða blanda af þessu.
 
Innifalið í ferð er flug auk skatta með Icelandair á föstudags morgni frá Keflavík beint til Manchester og til baka á mánudegi, gisting í tveggja manna herbergi í 3 nætur með morgunverði á mjög góðu 3ja - 4ra stjörnu hótel í miðborg Manchester.
 
Aðrir staðir og borgi eftir samkomulagi.  Ef þig langar þangað, þá komum við þér þangað.
 
Við mælum með að krydda helgarferð með því að skreppa á völlinn, fara á tónleika, í leikhús og út að borða.
Að sjálfsögðu hjálpum við hópum með þessa þætti og annað sem þarf til að ferð heppnist sem best.
Sérhópum bjóðum við upp á þjónustu sem alla jafna er ekki veitt af ferðaskrifstofum.
Þannig getum við séð um skólaheimsókn í námsferðir kennara í Liverpool og víðar.
 
Það má segja að sama hver eðlis hópur sé, hvert hann vill fara og hvað hann vill gera þá geta ÍT ferðir aðstoðað við að skipuleggja ógleymanlega ferð.
 
Við reynum að finna það sem hentar hverjum hópi best og veitum þjónustu "alla leið".
Hafið samband og leitið tilboða á netfangið hopar@itferdir.is eða í síma 588 9900.
Það kostar ekkert !
 
Upplifið heiminn með ÍT ferðum - Pottþétt og persónuleg þjónusta í 15 ár !!!