Fyrirtæki – Starfsmannahópar

Langar vinnufélagana að fara í námsferð eða halda árshátíðina erlendis?

ÍT ferðir bjóða upp á fjölbreytt úrval af árshátíðar- og skemmtiferðum til ýmissa borga í Evrópu, m.a. flestallra áfangastaða Icelandair.

Vinsælustu borgirnar síðustu árin hafa verið Glasgow, Edinborg, Liverpool, Dublin, Berlín og Helsinki en ÍT ferðir hafa einnig skipulagt ferðir til Manchester, Belfast, Stokkhólms, Amsterdam, Parísar, Stuttgart, Barcelona og Madrid svo eitthvað sé nefnt.

Við kryddum gjarnan árshátíðar- og skemmtiferðir með því að fara á fótboltaleik, á tónleika eða á söngleik.

Þá er hefur ferð til Helsinki og Tallinn með siglingu, “party-cruise”, með skemmtiferðaskipi og gistingu um borð slegið í gegn.

Við þjónustum hópana okkar alla leið. Það þýðir að þegar óskað er þá förum við með í ferðina sem umsjónarmenn ferðar. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir síðastliðin ár.

Þið sem eruð að spá í árshátíðar- eða skemmtiferð fyrir starfsmannafélag fyrirtækis eða stofnunar 2020 eða 2021, endilega hafið samband og leitið tilboða!