11.11.2011

Bobby Charlton skólinn 2012

Ferð í knattspyrnuskóla Bobby Charlton í Manchester
er ógleymanleg upplifun.

Frábær ferð fyrir fríska fótboltakrakka!

Námskeið 2012: 3. - 10. ágúst 2012.

Góð hótelgisting með rúmfatnaði, sjónvarpi, baðherbergi og handklæði, fullt fæði og æfingar.
Mjög góð gisti-, fræðslu- og íþróttaaðstaða.
Heppilegur aldur er 13 – 17 ára, strákar og stelpur, einstaklingar, hópar og lið.
Fljótlega eftir komu á staðinn er hópnum skipt upp í æfingahópa og fær hver hópur sinn þjálfara.
Flesta daga er æft 2-3svar á dag undir leiðsögn þjálfara með FA og UEFA réttindi.
Keppt er í hæfileikakeppni skólans þar sem þátttakendur fá tækifæri til að bæta met David Beckham.
Farið er í skoðunarferð á leikvöll í nágrenninu, yfirleitt Anfield eða Old Trafford.

Heimasíða skólans http://www.bcssa.co.uk  fyrir frekari upplýsingar um skólann sjálfann.
Hér má sjá video frá skólanum.
 
Verð í vikuferð frá: kr. 199.900 *
*Verð miðast við flugvallarskatta og gengi 24. nóvember 2011
 
Innifalið í verði:
Flug til MAN með Icelandair, flugv.skattar, flugv.akstur erlendis, hótelgisting, fullt fæði, Bobby Charlton skólinn, skoðunarferð á leikvang (Old Trafford eða Anfield) og íslensk fararstjórn.

BÓKA FERРHÉR

 
Boðið er aukalega upp á ferð í skemmtigarð og einnig á knattspyrnuleik.
 
Íslenskir fararstjórar fylgja hópnum alla ferðina, þær Anna og Hanna, tvær frábærar “fótboltamömmur”.
 
Yfir 1.800 ánægð íslensk ungmenni síðan 1994 !
 
 
Fótbolti er forvörn !!!