14.12.2011

Tónlistaferðir

Tónlistarhópar
 
Ertu í kór, lúðrasveit eða annars konar tónlistarhópi ?
 
ÍT ferðir hjálpa þér/ykkur við að skipuleggja tónlistarferð til útlanda.
Flug, gisting, tónleikar, skoðunarferðir o.fl.
 
 

ÍT ferðir hafa skipulagt ferðir fyrir ýmsa tónlistarhópa s.s. Kór Langholtskirkju til Færeyja, Frímúrarakórinn til Egyptalands og Ísrael, Lúðrasveit Vesturbæjarskóla og Lúðrasveit Tónlistarskóla Akraness til Spánar, Söngsveitina Fílharmóníu til Póllands o.fl. Þessar ferðir hafa gengið mjög vel og viljum við bjóða þér og þínum tónlistarhópi upp á góða þjónustu, mikla reynslu og sanngjarnt verð í tónlistarferð til útlanda.
 
ÍT ferðir bjóða kórum og lúðrasveitum upp á góðan valkost í Albir, á Costa Blanca strönd Spánar, skammt norðan við Benidorm. Þá getum við sett upp einstakar ferðir til Katalóníu, þar sem dvalið er í yndislegum strandbæ við Costa Brava ströndina, 70 km fyrir norðan Barcelona. Annað skv. áhuga ykkar.
 
 
Hafðu samband í 588 9900 eða hopar@itferdir.is og leitaðu tilboða.