Ferðaskilmálar

Það er ýmislegt sem ferðalangar þurfa að hafa í huga þegar þeir eru að skipuleggja ferðalag sitt.
 
Á þessari síðu er hægt að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar og hvetjum við farþega okkar til að kynna sér upplýsingarnar vel og vandlega.
 
Verð og verðbreytingar
Allar ferðir ÍT ferða eru sérferðir og lúta eftirfarandi reglum:

Verð á ferðum er staðgreiðsluverð og miðast við gengisskráningu og flugfargjöld.
Uppgefið verð við staðfestingu pöntunar getur breyst til samræmis við breytingar sem kunna að verða á einum eða fleiri af eftirtöldum þáttum.

a) Flutningskostnaði, þar með töldum eldsneytiskostnaði.
b) Álögum, sköttum eða sérgreiðslum fyrir tiltekna þjónustu, t.d. lendingargjöld.
c) Gengi þess gjaldmiðils sem á við tiltekna ferð.
d) Ferð sem er að fullu greidd tekur þó ekki slíkum verðbreytingum og sé ferð greidd að meiru en hálfu (en þó ekki að fullu) tekur ferðin verðbreytingum að 50% hluta. Ekki má breyta umsömdu verði síðustu 20 dagana áður en ferð hefst. Sérstakt þjónustugjald er innheimt fyrir þjónustu sem ekki er innifalin í verði ferðar, s.s. sérpöntun á bílaleigubíl, gistingu o.fl.

Bókun ferða og afpöntun:
Hvaða upplýsingar þarf til að bóka?
Við bókun er mjög mikilvægt að fram komi eftirfarandi upplýsingar:
-Fullt nafn allra þátttakenda, kennitala, heimilis- eða netfang og símanúmer.
Staðfesting ferðar:
-Til að festa ferðapöntun verður að greiða staðfestingargjald sem er frá 25.000 kr. fyrir hvern farþega, en getur verið hærri í samræmi við kröfur frá okkar birgjum.
Staðfestingargjaldið er endurgreiðsluhæft án kostnaðar innan viku frá pöntun.

Farþegar geta greitt fullnaðargreiðslu með þrennum hætti:
1. Með beinni greiðslu hjá ÍT ferðum.
2. Með greiðslukorti í gegnum síma.
     -einnig er í boði að dreifa greiðslum á 2 - 36 mánuði
3. Með millifærslu.
Þjónustugjöld: Ef bókað er flug er þjónustugjald kr. 3.500 á mann og 2.500 kr. fyrir hverja sérpöntun á þjónustu erlendis. Fyrir aðra þjónustu þegar ekki er keypt flug er þjónustugjald 7.500 kr. Bókunarfyrirvari er yfirleitt enginn.
Í undantekningartilfellum þarf fyrirvara á bókun. Í þeim tilfellum þar sem við þurfum að skuldbinda okkur gagnvart erlendum samstarfsaðilum okkar með hærri upphæðum en sem nemur staðfestingargjaldinu getur þurft að innheimta hærra staðfestingargjald við bókun.

Breytingargjald:
Ferðapöntun er fastsett með greiðslu staðfestingargjalds við pöntun. Ef breytingar eru gerðar meira en viku eftir staðfestingu greiðist breytingargjald, 7.500 kr. á bókun, fyrir hverja breytingu sem farþegi óskar eftir. Til slíkra breytinga teljast breytingar á fjölda farþega á bókun, breytingar á nöfnum, breyting á gististað eða breyting á dagsetningum. Ef breyting felur í sér hækkun á verði ferðar greiðir farþegi mismuninn að auki. Breyting á dagsetningu ferðar með minna en mánaðar fyrirvara skoðast sem afpöntun og ný pöntun og áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til greiðslu skv. því, sbr. afpöntunarskilmála.

Afpöntun og endurgreiðsla pakkaferða:
• Ferð afpöntuð 5 vikum fyrir brottför eða fyrr, og innan við viku frá pöntun:
Full endurgreiðsla (einnig staðfestingargjald).
• Ferð afpöntuð meira en viku frá pöntun en þó 4 vikum fyrir brottför eða fyrr:
Full endurgreiðsla að staðfestingargjaldi undanskildu.
• Ferð afpöntuð 15—27 dögum fyrir brottför:
25% af verði ferðar óendurkræft, þó aldrei lægri upphæð en sem nemur staðfestingargjaldi.
• Ferð afpöntuð 3—14 dögum fyrir brottför:
50% af verði ferðar óendurkræft, þó aldrei lægri upphæð en sem nemur staðfestingargjaldi.
• Ferð afpöntuð minna en 3 dögum fyrir brottför:
Engin endurgreiðsla.
• Þegar reglur samstarfsaðila okkar ganga lengra en að ofan greinir, gildir sú regla sem gengur lengra. Ef greitt er með kreditkorti er alltaf endurgreitt inn á kreditkortið.
Alferðargjald: 300 kr. fyrir hvern farþega sem bókaður er í alferð, sbr. lög um alferðir nr. 80/1994. Gjaldið er til þess að standa straum af aukakostnaði sem sérstaklega fellur til vegna slíkra bókana.
 
Forfallagjald:
Öllum farþegum í hópa- og einstaklingsferðum ÍT ferða er ráðlagt að kaupa sér forfallagjald (tryggingu)hjá sínu tryggingarfyrirtæki, ef slíkt er ekki innifalið í kreditkorti viðkomandi. Flugvallarskattar eru ekki innifaldir í uppgefnu verði og eru háðir breytingum. Upphæð flugvallarskatta kemur fram í verðlistum/verðupplýsingum. Erlendur hluti flugvallarskatta er háður gengi hvers tíma.

Fullnaðargreiðsla og greiðslukjör:
Fullnaðargreiðsla ferðarinnar skal fara fram í síðasta lagi 6 vikum fyrir brottför nema kröfur birgja okkar geri kröfur um annað, að öðrum kosti leggjast 5 % við eftirstöðvarnar.
Greiðslukjör: Semja má um greiðslukjör ferðarinnar ef svo ber undir.

Tryggingar
Vandaðu valið: Ástæða er fyrir farþega að huga vel að tryggingamálum sínum áður en lagt er upp í langferð. Sé ferð greidd með greiðslukorti a.m.k. að hálfu fylgir í flestum tilfellum með ókeypis ferðatrygging frá greiðslukortafyrirtæki. Athugið að þessar tryggingar eru afar mismunandi eftir tegund greiðslukorts. Kynnið ykkur vel skilmála sem má fá í sérprentuðum bæklingum frá greiðslukortafyrirtækjunum.

Veikindi eða slys erlendis: Kynntu þér vel bækling Tryggingastofnunar ríkisins „Veikindi eða slys á ferð erlendis – hvaða rétt átt þú?“ Bæklinginn getur þú nálgast hjá Tryggingastofnun ríkisins.  Einnig er hægt að sækja um Evrópskt sjúkratryggingakort hjá Tryggingastofnun Ríkisins t.d. á heimasíðu stofnunarinnar.

Á áfangastað
Gisting: Gistilýsingar byggjast á upplýsingum frá stjórn gististaðanna og að hluta á mati starfsfólks ÍT ferða. ÍT ferðir bera ekki ábyrgð á því ef aðbúnaður og þjónusta gististaðanna er tímabundið ekki til staðar sökum bilana eða endurnýjunar, t.d. ef loftkæling bilar eða sundlaug er lokuð vegna hreinsunar eða endurnýjunar.
Aðbúnaður og þjónusta í vistarverum: Enda þótt misjafnlega sé staðið að þrifum á gististöðum ná þau í einstaka tilfellum ekki að standa undir kröfum Íslendinga. Komi upp óánægja með þrif á vistarverum skal tafarlaust hafa samband við fararstjóra eða stjórnendur viðkomandi gististaðar. Í stúdíóum og íbúðum miðast eldhúsbúnaður við hámarks gestafjölda eins og getið er um í gistilýsingum. Gestir bera ábyrgð á eldhúsbúnaði meðan þeir dvelja í íbúðum. Afföll og skemmdir skal gera upp við hótelið áður en farið er.
Fæði: Fæði er ekki innifalið í gistiverði á íbúðahótelum nema þess sé sérstaklega getið. Í hótellýsingum og/eða verðlista kemur fram hvort fæði er innifalið í verði.

Séróskir:
ÍT ferðir eru umboðsaðili gististaða og hafa ekki yfirráð yfir gistirými. Yfirmenn gististaðanna sjá um niðurröðun farþega í herbergi/íbúðir og starfsfólk ÍT ferða getur ekki ábyrgst að séróskum farþega sé fullnægt umfram það sem getið er um í gistilýsingum og verðlista. Séróskum farþega verður þó að sjálfsögðu komið á framfæri við gististaði. Oftast má leigja barnarúm ytra og í slíkum tilfellum skal láta ÍT ferðir vita eins fljótt og mögulegt er svo koma megi slíkum óskum á framfæri. Ef um greiðslu er að ræða fyrir afnot af barnarúmi skal yfirleitt greiða beint til gististaðar ytra.

Yfirbókun:
Samkvæmt starfsreglum gististaða hafa hótel og íbúðahótel leyfi til að yfirbóka gistirými til að mæta eðlilegum afföllum í pöntunum. Örsjaldan kemur sú staða upp að gististaðir hafa ekki pláss fyrir alla þá viðskiptavini er eiga staðfestar pantanir. Gististaðir eru þá skyldugir til að útvega þeim viðskiptavinum, sem ekki fá inni, sambærilegan eða betri gististað. ÍT ferðir bera ekki ábyrgð á yfirbókunum gististaða, en aðstoða farþega að sjálfsögðu eftir föngum. Geymsla verðmæta: Við mælum eindregið með að viðskiptavinir geymi alls ekki peninga né annað verðmæti á herbergjum eða í íbúðum, heldur noti öryggishólf sem bjóðast ýmist í gestamóttöku eða í vistarverum. Hvorki gististaðir né ÍT ferðir eru ábyrg ef verðmæti tapast úr vistarverum.

Innritun/afskráning á hótelum:
Á flestum gististöðum gildir sú meginregla að gestir skuli hafa skilað herbergi/íbúð kl. 12 á hádegi á brottfarardegi (stundum kl. 10). Misjafnt er eftir gististöðum hvenær herbergi og íbúðir eru tilbúin til innritunar, en þó er miðað við tímabilið frá kl. 13 til 16. Sé í hópferðum brottför til flugvallar síðdegis eða að kvöldi til verða gerðar ráðstafanir til að fá afnot af aðstöðu þar sem farþegar geta geymt farangur og þeim tryggður aðgangur að hreinlætisaðstöðu.

Bílaleigur:
ÍT ferðir eru umboðsaðili fyrir bílaleigur, en bera ekki ábyrgð á vanefndum eða mistökum slíkra fyrirtækja sem ekki hafa orðið vegna mistaka hjá ÍT ferðum. Fáið upplýsingar hjá sölumönnum um lágmarksaldur ökumanns og hvaða takmarkanir eru á akstri milli landa. Athugið að leigutaki verður að hafa meðferðis kreditkort, skráð á sitt nafn og gilt ökuskírteini. Ekki er hægt að staðfesta ákveðna bílategund heldur er staðfestur flokkur, og tegundir bíla sem eru til innan hvers flokks geta breyst með litlum fyrirvara. ÍT ferðir bera ekki ábyrgð ef bíll í staðfestum bílaflokki er ekki til. Það er á ábyrgð bílaleigu að leysa slíkt með því að láta leigutaka í té bíl í öðrum flokki án þess að hann beri aukakostnað. Áríðandi er að kynna sér vel hvað er innifalið í fyrirframgreiddu gjaldi fyrir bíl og hvernig tryggingamálum er háttað. Í sumum tilfellum eru í boði viðbótartryggingar sem leigutaki semur um kaup á beint við bílaleiguna og greiðir á staðnum. Áríðandi er að leigutaki viti að víða er ekki hægt að kaupa af sér alla sjálfsábyrgð. Hann ber ábyrgð upp að vissri upphæð ef óhapp verður. Nauðsynlegt er því að leigutaki skoði bílinn vel þegar hann tekur við honum og láti skrá t.d. ef einhverjar rispur sjást. Við mælum eindregið með að einhver frá bílaleigunni sé fenginn til að skoða bílinn þegar honum er skilað. Góð regla er að skila bíl fullum af bensíni (geymið kvittun fyrir bensíninu) þar sem það er oft töluvert dýrara að kaupa það hjá bílaleigunum ef ekki hefur verið valið að kaupa fullan tank fyrirfram. Leigudagur miðast við 24 tíma. Ef farið er 59 mín. fram yfir umsaminn leigutíma greiðist aukadagur á fullu verði. Þarna hefst nýtt leigutímabil sem leigutaki semur um beint við bílaleiguna á viðkomandi leigustað. Aðgætið vel hvað þið skrifið undir á leigusamningnum.

Vandamál:
Komi af einhverjum ástæðum upp vandamál í ferð skal tafarlaust hafa samband við fararstjóra/kontaktaðila á staðnum. Þeir munu reyna að leysa málið á staðnum. Takist það ekki svo viðunandi sé að mati farþega getur hann komið athugasemdum sínum skriflega á framfæri við ÍT ferðir fljótlega eftir komuna til landsins, í samræmi við almenna ferðaskilmála Samtaka ferðaþjónustunnar. Fararstjóri/kontaktaðili mun senda skýrslu um málið til stjórnenda skrifstofunnar svo fljótt sem kostur er. Ef farþegi kemur ekki kvörtun sinni á framfæri meðan á ferð stendur, hefur hann fyrirgert rétti sínum til hugsanlegra bóta. Vinsamlegast athugið að til að athugasemdir farþega fái eðlilega afgreiðslu skulu þær lagðar fram skriflega á þennan hátt. Að öðrum kosti sjá ÍT ferðir sér ekki fært að svara athugasemdum formlega.

Vegabréf og áritanir:
Gætið vel að gildistíma vegabréfsins fyrir brottför og að það sé ekki útrunnið. Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun til þeirra landa í Evrópu sem Icelandair flýgur til. Til Bandaríkjanna þarf í sumum tilfellum áritun og er nauðsynlegt að huga að því tímanlega. Í sumum ferðum þarf vegabréfsáritun. Leitið ykkur nánari upplýsinga. Öll börn þurfa nú sitt eigið vegabréf.

ÍT ferðir gera fyrirvara um prent- eða innsláttarvillur á útgefnu kynningarefni, hvort sem er á pappírs- eða rafræanu formi.  Við bendum á að af öðru leiti en segir hér að ofan gilda lög um alferðir 1994 nr. 80.
 
 
Við hvetjum alla farþega okkar til að kynna sér almenna ferðaskilmála og samþykkt þjónustugjöld Samtaka ferðaþjónustunnar á www.saf.is.
 
Einnig hvetjum við alla farþega okkar til að kynna sér tryggingaskilmála kreditkortafyrirtækja og tryggingafélaga sem átt er í viðskiptum við.