Handboltaferðir

Handknattleiksferðir yngri flokka

*** í ljósi aðstæðna eru allar okkar ferðir í endurskoðun ***

Í eðlilegu árferði bjóðum við upp á gott úrval ferða á alþjóðleg mót og frábæra staði fyrir æfinga- og keppnisferðir. Íþróttamiðstöðvar í Danmörku og skemmtilegir strandbæir á Spáni. 
Topp handboltaferðir á sanngjörnu verði. 

Smellið á viðkomandi mót til að fá meiri upplýsingar.

Generation Handball, Danmörku yfir versló  
Nýlegur og frábær valkostur í Viborg á Jótlandi sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur.

  • Bestu meðmæli íslenskra liða!
  • Mjög flott aðstaða í skemmtilegum bæ.
  • Allt á einum stað: gisting, matur, handboltaleikir, afþreying!
  • 4. flokkur og eldri spila alla leiki inni!
  • Besti nýi valkosturinn fyrir íslensk handboltalið í 20 ár!

Önnur mót:

Granollers Cup, Spánn 

Interamnia World Cup, Ítalía

Paris World Cup, Frakkland

ÆFINGA- OG KEPPNISFERÐIR 
Smellið á viðkomandi stað til að fá meiri upplýsingar.

Spánn:
Tímasetning þegar hentar, t.d. í lok maí, byrjun júní.

Albir-Alfas del Pi við Costa Blanca ströndina.

Gist á góðu íbúðahóteli með fínum sundlaugargarði í rólegum bæ. 
Æfingar í nýlegri íþróttahöll, 5 mín. akstur.
Skemmtigarðar, Terra Mitica og Aqualandia. Meðmæli!

Salou … fyrir sunnan Barcelona. Mjög gott hótel, frábær matur, gangfæri í íþróttahöll og á ströndina. Klassa staður fyrir alla flokka!
Lloret de Mar … fyrir norðan Barcelona. Góð hótel í gangfæri við El Moli íþróttahöllina og Costa Brava ströndina.

Danmörk:
Tímasetning þegar hentar.

Vildbjerg: Ein allra besta íþróttamiðstöð Danmerkur.
Flott aðstaða í rólegum bæ, stutt til Herning í verslunarferð, Djurs Sommerland í klukkutíma fjarlægð og nóg af handbolta.

Lökken: Mjög góð íþróttamiðstöð við skemmtilega strönd.
Flott aðstaða í skemmtilegum strandbæ, stutt til Álaborgar í verslunarferð, Farup Sommerland í næsta nágrenni og nóg af handbolta.

Verð: Leitið tilboða. Það kostar ekkert!

Hafið samband sem fyrst og bókið fund eða kynningu fyrir
þjálfara – unglingaráð – foreldra