Fótboltaferðir

Knattspyrnuferðir 2021

*** í ljósi aðstæðna eru allar okkar ferðir í endurskoðun ***
  1.      Knattspyrnuferðir yngri flokka
  2.      Æfingaferðir meistara- og 2. flokks

 

Dæmi um æfinga- og keppnisferðir unglingaliða:

Alþjóðleg mót: Smellið á viðkomandi mót til að fá meiri upplýsingar. 

Helsinki Cup: Gott mót í skemmtilegri borg; 12.-17. júlí 2021

USA Cup í Minneapolis: Einu sinni á ævinni; 13.-17. júlí 2021

• Costa Blanca Cup: Skemmtilegt mótið á Spáni; 4.-10. júlí 2021

Dana Cup: Stórt og gott mót í Hjörring; 26.-31. júlí 2021

Vildbjerg Cup: Mjög gott mót á flottum stað; 29. júlí – 1. ágúst 2021

  • SIF Cup: Södertälje í Svíþjóð; júní/júlí 2021

 Önnur mót:

• Paris World Games: Nýlegt og spennandi mót; 5.-10. júlí 2021

Donosti Cup: Eitt albesta mótið á Spáni; 5.-10. júlí 2021 

San Marino Cup: Skemmtilegur valkostur; 5.-9. júlí 2021

Staðir:
Við vekjum athygli á þeim möguleika að fara með unglingalið í skemmtilega æfinga- og keppnisferð í stað þess að fara á mót.  Hentar vel til að sameina íþróttaferð og sumarleyfi, taka fjölskylduna með og jafnvel framlengja ferð.  Tímasetning þegar hentar hverjum hópi.

Spánn: Smellið á staðina til að fá meiri upplýsingar.

Fín aðstaða í Albir-Alfas del Pi við Costa Blanca ströndina. Gist á góðu íbúðahóteli með fínum sundlaugargarði í rólegum bæ.  Mjög góðir grasvellir um 1 km frá hóteli. Skemmtigarðarnir, Terra Mitica og Aqualandia, eru skammt undan og svo vatnsleikjagarður innan veggja hótelsins!

Santa Susanna: skemmtilegur strandbær norðan við Barcelona. 
Mjög góð hótelgisting, fullt fæði, vellir við hótel. 

Lloret de Mar: þar næsti bær við Santa Susanna, um 70 km frá Barcelona. Allt í gangfæri, æfingavellir, miðbær, strönd. 
Sól + sjór + strönd + bolti = stöngin inn! 🙂
Barcelona-ferð með heimsókn á Nou Camp … !

Danmörk: smellið á staðina til að fá meiri upplýsingar.

Vildbjerg Sport Center á Jótlandi: Toppstaður, sá besti í Danmörku.

Lökken Sportcenter á Jótlandi: Góður bær við skemmtilega strönd.

Fleiri kostir í boði – alltaf eitthvað nýtt á hverju ári.

Hafið samband sem fyrst og bókið fund/kynningu fyrir þjálfara – unglingaráð – foreldra.